ReferNet á Íslandi
Markmið ReferNet
ReferNet er samstarfsnet sem hefur það markmið að auka upplýsingasöfnun og miðlun upplýsinga um starfsmenntun í Evrópu. Öll lönd Evrópska efnahagssvæðisins taka þátt í þessu samstarfi og hafa tengiliðir í hverju landi það hlutverk að afla upplýsinga um nýjungar í samstarfsmenntun í sínu land og að koma þeim til Cedefop. Stofnunin skrifar síðan heildarskýrslur um stöðu starfsmenntunar innan Evrópu, t.d. stefnumótun og rannsóknir. Skýrslur hvers lands eru einnig birtar á vef stofunarinnar og á þessum vef eru allar íslensku skýrslurnar.
Kerfið var sett á stofn af CEDEFOP til að mæta vaxandi spurn eftir upplýsingum til að auðvelda samanburð á þróun og mismunandi stefnumótun aðildarríkjanna.
Cedefop er miðstöð Evrópusambandsins um þróun starfsmenntunar. Stofnunin veitir upplýsingar um og greiningu á starfsmenntakerfum í löndum álfunnar, stefnumótun, rannsóknir og útfærslu. Cedefop var sett á stofn árið 1975 og starfar eftir reglugerð EEC nr. 337/75. Ítarlegri upplýsingar um starf Cedefop eru á http://www.cedefop.europa.eu/EN/about-cedefop.aspx (á ensku).
Uppbygging ReferNetsins - landsnefndir fulltrúa hinna ýmsu greina
Undir ReferNet eru landsnefndir í hverju aðildarríki. Í nefndunum eru fulltrúar fræðslustofnana hinna ýmsu atvinnugreina. Netið leiðir saman stofnanir og félög með samskonar áhugamál á sviðum starfsmenntunnar, starfsþjálfunar og starfsnáms. Það örvar upplýsingaskipti og eflir samvinnu og gerir landsnefndarmönnum kleift að efla samskipti við aðrar alþjóðlegar stofnanir í og utan Evrópu.
Verkefni Refernets eru þrennskonar:
- Heimildasöfnun og dreifing
Um er að ræða söfnun upplýsinga og uppfærslu sítengdra gagnagrunna, svo og ýmsa upplýsingaþjónustu, auk þess sem ReferNet sér um kynningu og dreifingu upplýsinga um árangur af störfum CEDEFOP. Einnig er stutt við kynningar- og útbreiðslustarf svo sem ráðstefnur og málþing. - Söfnun og greining upplýsinga
Söfnun nýjustu upplýsinga um kerfi starfsmenntunar og þjálfunar í Evrópu, svo og greiningu á viðkomandi efnum. - Rannsóknir
ReferNet leggur sitt af mörkum til þróunar samræmdra rannsóknaraðferða. Með gagnkvæmum upplýsingaskiptum tryggir ReferNet betri yfirsýn yfir, og dreifingu á vitneskju um rannsóknir á sviði starfsmenntunar og þjálfunar í Evrópu.

Umsjónarmaður Dóra Stefánsdóttir
Tæknigarði
Dunhaga 5
107 Reykjav’k
Sími: 515 5834
Veffang: http://www.rannis.is
Netfang: dora.stefansdottir@rannis.is
CEDEFOP
Europe 123
GR-570 01 Thessaloniki
Grikkland
Sími: +30 2310 490 214
Bréfsími +30 2310 490 043
Veffang: www.cedefop.gr
Netfang: info@cedefop.gr
